það finnst mér svolítið skemmtilegt, og ég fæ mjög góðan tíma og
tækifæri til að leika mér að því í vinnunni, að reyna að skyggnast
inn í umhverfið. helst kannski manneskjur. og þá meina ég það sem
margir, ef ekki allir, einhvern tímann hafa óskað sér. jú auðvitað
er ég að tala um það að átta mig á hugsunum annarra og hvernig
fólki líður þegar það umgengst mann. verðugt og skemmtilegt
viðfangsefni þar. svo er gott að hafa það til hliðsjónar að áður en
þú ferð að átta þig á öðrum skaltu átta þig á sjálfum þér.

jæja, nú fer að styttast í heldur betur stórt verkefni, leyfi
mér nú samt að halda að það verkefni sé löngu byrjað. umrætt
verkefni er margþjóðlegt handknattleiksmót í ríki Svía sem hefst
þann 2. júlí n.k. og stendur yfir í u.þ.b. viku. ég er ekki frá því
að fiðrildið í maganum mínum sé að ergjast með hverjum deginum þó
að maður telji sig nú vera kominn með nokkuð mikla reynslu af
stórum mótum. og auðvitað er stefnan sett á dolluna, er það ekki
annars.
áhugasamir geta fylgst með gangi mála á blogg-síðu
flokksins, línkur hér til vinstri - handboltinn-, get lofað ykkur
því að það mun rjúka úr lyklaborðum ofvirku fararstjóranna.
í lokin verð ég að minnast á aldeilist frábæra ferð upp á
golfvöll seint í gærkvöldi. þá fórum við systir mín og nutum
lengsta dags ársins með kylfu í annarri hendi og kúlu í hinni.
hreint út sagt magnað að heyra kirkjuklukkurnar slá tólf en samt
rétt glitti í sólina. nota bene þá fórum við systkinin á kostum á
síðustu holu þessarar ferðar. thumbs up.
ákvað að breyta um lúkk á síðunni, fannst hitt of dimmt, vildi
aðeins gera þetta bjartara.
live in a light, not in a night
vona að ykkur líki það
verður ekki lengra
sólarkveðjur. siggi